Íslenskuver Rimaskóla
VERKFÆRI FYRIR KENNARA

Gervigreind
í kennslu.

Fulltrúar, vinnuferli og leiðbeiningar fyrir kennara.

Gervigreind

Gervigreindarlausnir fyrir kennara

Hér eru þrjár gervigreindarlausnir sem styðja kennara við að búa til einfalda íslensku, glósur, þýðingar og æfingar fyrir nemendur. Lausnirnar eru hugsaðar sem skýrt verkferli, þar sem kennarar velja þá leið sem hentar verkefninu best.

Ábyrgð: Kennarar bera sjálfir ábyrgð á því efni sem þeir vinna með í gervigreind og þurfa að tryggja að ekki sé notað höfundavarið efni nema réttur sé til staðar.

Fulltrúi 1 – Einföld íslenska

Undirbúningur: Kennari hleður inn þeim kafla eða blaðsíðum sem á að vinna með og tilgreinir aldur, hæfnistig og markmið. Fulltrúinn vinnur með einn kafla í einu. Gott er að halda vinnu við hverja námsbók í sér samtali og hafa fyrirmæli skýr. Ef skrá er of stór má skipta henni í minni hluta samkvæmt skráarmörkum þjónustunnar. Kennari fer yfir einfaldaða textann og afritar samþykkt úttak í fulltrúa 2 til þýðingar.

Hlutverk

Tekur eina til nokkrar blaðsíður í einu

Býr til einfalda íslensku sem hentar ÍSAT-nemendum

Les yfir textann með kennslufræðilegum augum

Leiðbeiningar

Tilgreindu aldur og hæfnistig

👉 Nota fulltrúa 1 í ChatGPT: https://chatgpt.com/g/g-6979d9a210c081919261791a81274e19-fulltrui-1-islenska-ur-bok-kennarasnidmat

👉 Nota fulltrúa 1 í Gemini: https://gemini.google.com/gem/1kcuhIM1Uk63qeOKj7uh4wpEMKwZzKS1Y?usp=sharing

Fulltrúi 2 – Þýðingar

Þegar textinn frá fulltrúa 1 hefur verið yfirfarinn er hann afritaður og límdur inn í fulltrúa 2.

Hlutverk

Þýðir texta á umbeðin tungumál

Skilar tveimur útgáfum af þýðingu:

A: bein og nákvæm

B: einfaldari og nemendavænni

Leiðbeiningar

Afritaðu texta frá fulltrúa 1

Límdu inn í fulltrúa 2

Tilgreindu hvaða tungumál á að nota

Biddu um báðar útgáfur. Farðu yfir þær og veldu þá framsetningu sem hentar nemandanum.

👉 Nota fulltrúa 2 í ChatGPT: https://chatgpt.com/g/g-697ca1a2fba48191b5fc85b522ee11f7-fulltrui-2-thydingarvel

👉 Nota fulltrúa 2 í Gemini:

https://gemini.google.com/gem/1RozdD78zHE_Nj-hbGZ32-xnbR96xRngE?usp=sharing

Stærðfræðifulltrúinn

Stærðfræðifulltrúinn tekur við einstökum dæmum eða ljósmyndum af verkefnum og aðstoðar við að þýða textann. Hann getur einnig búið til dæmi. Kennari yfirfer þýðingar, fyrirmæli og lausnir áður en efnið er lagt fyrir nemendur.

https://chatgpt.com/g/g-69832ea9099081918fb2eaa8da2ea184-math-translator