Íslenskuver Rimaskóla
SKRÁNING OG SAMFELLA

Skráningarform
og leiðbeiningar.

Einstaklingsnámskrá, dagbók og leiðbeiningar um skráningu.

SKRÁNINGARSKJAL

Leiðbeiningar fyrir kennara

Opna skjalið ↗

Leiðbeiningar fyrir kennara – Notkun matskvarða og prófa í leiðsagnarmati ÍSAT-náms

1. Markmið og tilgangur

Markmið matskvarðanna og einstakra prófa er að styðja við leiðsagnarmat í íslensku sem öðru tungumáli (ÍSAT). Verkefnin eru hönnuð til að gefa kennurum skýra yfirsýn yfir stöðu nemenda á hverju hæfnistigi og auðvelda skipulagningu kennslu, einstaklingsnámskrár og áframhaldandi þjálfunar.

2. Notkun matskvarða

Matskvarðar eru notaðir sem vinnuskjöl til að skrá framvindu nemenda. Hægt er að leggja fyrir eitt eða fleiri atriði í senn, allt eftir markmiðum kennslustundar eða námslotu. Þegar kennari telur að nemandi hafi náð ákveðinni færni, er það merkt inn í viðeigandi dálk í matskvarðanum.

  • Hæfni er metin út frá því sem nemandinn sýnir í verkefnum og samtölum. Þátttaka og virkni eru skráðar sérstaklega og koma ekki í stað mats á málfærni.
  • Í athugasemdir eru skráð dæmi um málnotkun, svör og verkefni sem sýna viðkomandi hæfni, ásamt því hvaða stuðningur var veittur.
  • Þegar nemandi hefur sýnt hæfni samkvæmt viðmiðunum er hæfnistig hans endurmetið með hliðsjón af ÍSATmat, verkefnum og athugunum kennara. Meta þarf hlustun, lestur, talað mál og ritun hvert fyrir sig.

3. Hluti prófa sem leiðsagnartæki

Í leiðsagnarmati geta kennarar valið afmörkuð verkefni, svo sem stafapróf, orðaskilningsæfingar eða einfaldar samræður, til að kanna ákveðna þætti. Þetta á ekki við um fyrirlögn staðlaðra prófa, þar sem farið er eftir leiðbeiningum viðkomandi matstækis:

  • Stafapróf nýtist ekki aðeins til að kanna ritun og lestur heldur einnig hlustun og hljóðkerfisvitund. Kennari les upp staf, nemandi bendir á eða skrifar stafinn. Kennari getur spurt: „Geturðu nefnt orð sem byrjar á þessum staf?“ til að meta orðaforða og skilning.
  • Orðaforðapróf má tengja þemum (t.d. litir, skóli, fjölskylda) og nota til að meta hvort nemandi kann orð í samhengi.
  • Munnlegar æfingar má nota bæði til mats á talaðri færni og hlustunarskilningi.

Einstök verkefni í leiðsagnarmati má leggja fyrir eftir þörfum yfir önnina. Við fyrirlögn staðlaðra prófa er farið eftir fyrirlagnarleiðbeiningum viðkomandi matstækis.

4. Skráning í einstaklingsnámskrá og dagbók

Niðurstöður úr matskvarða og prófum skulu skráðar í einstaklingsnámskrá nemandans. Þar er yfirlit yfir stöðu og markmið fyrir hvert hæfnistig. Dagbókin heldur utan um daglegar eða vikulegar athugasemdir kennara, s.s. hvaða verkefni voru unnin, hvaða hæfni var þjálfuð og næstu skref. Kennarar sem deila ábyrgð á sama nemanda geta nýtt dagbókina til samræmingar.

5. Samræming og endurmat

Regluleg samræming milli ÍSAT-kennara og annarra kennara skólans er lykilatriði. Gott er að fara yfir matskvarða á 6–8 vikna fresti og uppfæra stöðu nemenda. Endurmat skal fara fram þegar kennari telur að nemandi hafi fært sig á næsta hæfnistig.

6. Tengsl við kennsluáætlun og námskrá

Matskvarðar, einstaklingsnámskrár og dagbækur eru nátengd kennsluáætlun íslenskuversins. Þau styðja samfellu milli kennslu, mats og námsmarkmiða sem byggja á aðalnámskrá. Kennarar nýta niðurstöður úr ÍSATmat ásamt þessum gögnum til að skipuleggja kennslu, fylgjast með framvindu og samræma námsmat.

SKRÁNINGARSKJAL

Einstaklingsnámskrá

Opna skjalið ↗

Sniðmát – gerið afrit áður en það er fyllt út.

Einstaklingsnámskrá – ÍSAT

Nafn nemanda: ____________________________

Kennitala: ____________________________

Bekkur: ____________________________

Umsjónarkennari: ____________________________

Stoðkennarar / ÍSAT-kennarar: ____________________________

Tímabil: ____________________________ (haust / vor)

Fjöldi tíma í íslenskuveri: ____________________________

Fjöldi tíma í námsveri / stuðningi: ____________________________

Hæfnistig og gögn sem matið byggir á: ____________________________

Einstaklingsnámskráin er uppfærð út frá framvindu nemandans, ÍSATmat, matslistum íslenskuversins, verkefnum og athugunum kennara. Markmiðin byggja á aðalnámskrá og útfærslu íslenskuversins með hliðsjón af aldri og námsstöðu. Skjalið styður leiðsagnarmat, samstarf kennara og samskipti við foreldra.

Hæfniþáttur

Núverandi hæfni (ÍSATmat, matslistar, verkefni og athuganir)

Markmið næsta tímabils

Aðferðir / stuðningur

Endurmat / framvinda

Hlustun

Lestur

Talað mál

Ritun

SKRÁNINGARSKJAL

Dagbók kennara

Opna skjalið ↗

Sniðmát – gerið afrit áður en það er fyllt út.

Dagbók kennara – ÍSAT

Þetta skjal er ætlað til að halda utan um framvindu nemenda í íslenskuveri. Skrá skal raunveruleg verkefni, athuganir og næstu skref til að tryggja samfellu milli kennara. Eitt skráningarform fyrir hvern kennslutíma eða viðkomandi kennslulotu.

Dagsetning: ____________________________

Nemandi: ____________________________

Kennari: ____________________________

Verkefni / viðfangsefni:

Hæfniþættir sem unnið er með (haka við eða nefna):

☐ Hlustun ☐ Lestur ☐ Talað mál ☐ Ritun

Athugasemdir um frammistöðu og þátttöku:

Næstu skref:

Dagsetning: ____________________________

Nemandi: ____________________________

Kennari: ____________________________

Verkefni / viðfangsefni:

Hæfniþættir sem unnið er með (haka við eða nefna):

☐ Hlustun ☐ Lestur ☐ Talað mál ☐ Ritun

Athugasemdir um frammistöðu og þátttöku:

Næstu skref:

Dagsetning: ____________________________

Nemandi: ____________________________

Kennari: ____________________________

Verkefni / viðfangsefni:

Hæfniþættir sem unnið er með (haka við eða nefna):

☐ Hlustun ☐ Lestur ☐ Talað mál ☐ Ritun

Athugasemdir um frammistöðu og þátttöku:

Næstu skref:

Yfirlit yfir framvindu (mánaðarleg samantekt)

Hér má setja stutta samantekt yfir framvindu nemandans eftir ákveðið tímabil.

Dæmi: Nemandi hefur sýnt góða framför í lestri og tjáningu. Á næsta tímabili verður lögð áhersla á ritun og orðaforða.

Opna alla sniðmátamöppuna ↗